Fáni Kambódíu
Núverandi þjóðfáni Kambódíu var tekinn upp að nýju 1993 þegar konungsdæmið var endurreist eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Allt frá miðri 19. öld hefur fáni Kambódíu haft í miðju mynd af Angkor Wat. Núgildandi fáni hefur bláa fleti að ofan og neðan og breiðari rauðann flöt á milli. Hlutföll litaflatanna eru 1:2:1. Hlutföll fánans eru 2:3. Það er sami fáni og var valinn við sjálfstæði landsins frá Frakklandi árið 1948. Hann var notaður (nema á hernámstímum Japana í seinni heimsstyrjöldinni) þangað til 9. október 1970 þegar Lon Nol lýsti yfir stofnun Khmer Lýðveldisins. Ríki Rauðu khmeranna, Lýðræðislega Kampútsea, á árunum 1975 til 1979 notaði rauðann fána með Angkor Wat í gulum lit. Alþýðulýðveldið Kampútsea hafði svipaðan fána nema þar hafði musterið fimm en ekki þrjá turna. Enn aðrir fánar voru notaðir 1989-1991 og 1992-1993 þegar landið var undir yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna, UNTAC. Árið 1993 var fáni konungsríkisins að nýju þjóðfáni landsins.
Fánasaga
[breyta | breyta frumkóða]Fáni | Tímabil | Notkun |
---|---|---|
1863-1948 | Fáni Kambódíu sem franskt yfirráðasvæði | |
1942-1945 | Fáni Kambódíu undir hernámi Japana | |
1948-1970, 1993-nú | Fáni Konungsríkisins Kambódía | |
1970-1975 | Fáni Khmer lýðveldisins | |
1975-1979 | Fáni Lýðræðislega Kampútsea | |
1979-1989 | Fáni Alþýðulýðveldisins Kampútsea | |
1989-1991 | Fáni Ríkisins Kambódía | |
1992-1993 | Fáni Kambódíu undir yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna (UNTAC) |