Elie Wiesel
Elie Wiesel | |
---|---|
Fæddur | 30. september 1928 |
Dáinn | 2. júlí 2016 (87 ára) |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Parísarháskóli |
Störf | Rithöfundur, kennari, aðgerðasinni |
Trú | Gyðingdómur |
Maki | Marion Erster Rose (g. 1969) |
Börn | 1 |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1986) |
Elie Wiesel (30. september 1928 – 2. júlí 2016) var rúmensk-bandarískur rithöfundur, kennari og pólitískur aðgerðasinni. Wiesel var gyðingur sem sat í útrýmingarbúðum nasista í Auschwitz og Buchenwald á tíma helfararinnar. Wiesel samdi 57 bækur á ævi sinni, meðal annars bókina Nótt, þar sem hann fjallaði um reynslu sína sem fangi í útrýmingarbúðunum.
Wiesel hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1986 fyrir störf sín sem formaður bandarísku forsetanefndarinnar um helförina og ýmis önnur mannréttindastörf.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Elie Wiesel fæddist þann 30. september árið 1928 undir nafninu Eliezer Wiesel í bænum Sighet í Rúmeníu. Foreldrar hans voru kaupmenn af gyðingaættum. Wiesel lærði trúfræði gyðinga á unga aldri og átti það eftir að hafa áhrif á ritstörf hans síðar meir.[1]
Wiesel var tæplega ellefu ára þegar seinni heimsstyrjöldin braust út. Hann var sendur ásamt fjölskyldu sinni til útrýmingarbúðanna í Auschwitz árið 1940. Þar voru móðir hans og yngri systir teknar af lífi í gasklefunum. Wiesel var síðar fluttur til útrýmingarbúðanna í Buchenwald ásamt föður sínum, sem lét þar lífið.[2] Bandaríkjaher frelsaði Wiesel úr haldi ásamt öðrum föngum búðanna í stríðslok þann 11. apríl árið 1945.[1]
Líkt og margir aðrir evrópskir gyðingar hafði Wiesel hug á að flytja til Palestínu eftir stríðið en stjórn Bretlands, sem réði þá yfir verndarsvæði í Palestínu, neitaði honum um fararleyfi þangað. Þess í stað var Wiesel vistaður á heimili fyrir fjölskyldulaus ungmenni í Normandí. Frá 1948 til 1951 nam Wiesel bókmenntir, sálfræði og heimspeki við Sorbonne-háskóla í París og vann fyrir sér sem blaðamaður, þýðandi og kennari í biblíufræðum með náminu. Hann varð á þessum tíma fullfær á frönsku.[1]
Wiesel fór til Ísraels árið 1948 sem blaðamaður á vegum franska blaðsins L'Arche til að fylgjast með undirbúningnum á stofnun Ísraelsríkis.[2] Hann fór til Indlands fjórum árum síðar í sömu erindagjörðum og lærði þar ensku. Wiesel hafði hug á að skrifa doktorsritgerð um samanburð á siðfræði kristni og gyðingdóms við siðfræði hindúisma en lauk aldrei við hana. Hann fór til Bandaríkjanna árið 1956 til að skrifa um Sameinuðu þjóðirnar fyrir ísraelska tímaritið Yedioth Ahronot.[2] Dvöl hans varð lengri en hann hafði ætlað sér þar sem hann lenti í slysi og varð að notast við hjólastól í heilt ár. Þar sem dvalarleyfi hans rann út á meðan hann lét sér batna sótti Wiesel um og hlaut bandarískan ríkisborgararétt.[1]
Árið 1956 gaf Wiesel út bókina Og heimurinn hefur verið þögull um reynslu sína sem fangi í útrýmingarbúðum nasista. Bókin var skrifuð á jiddísku, var 800 bls. að lengd og kom í upphafi aðeins út í Argentínu. Wiesel tókst ekki að fá verkið gefið út á frönsku fyrr en árið 1960, en þá hafði það verið stytt niður í 125 bls. og bar titilinn Nótt. Bókin var þýdd á mörg tungumál og vakti athygli fólks á útrýmingarherferð nasista og reynslu gyðinga á styrjaldarárunum.[1]
Wiesel gaf í kjölfarið út nokkrar stuttar sögur með sjálfsævisögulegu ívafi þar sem hann lýsti reynslu gyðinga af stríðinu og sektarkennd þeirra sem lifðu af helförina yfir því að hafa lifað á meðan ættingjar þeirra dóu. Sú vinsælasta af bókum hans frá þessum tíma var bókin Betlari í Jerúsalem, þar sem Wiesel fjallaði um sex daga stríðið. Wiesel tók jafnframt þátt í réttindabaráttu sovéskra gyðinga og í baráttu þeirra til að mega flytja úr landi.[1]
Árið 1969 kvæntist Wiesel Marion Erster Rose, gyðingakonu sem einnig hafði lifað af helförina. Wiesel-hjónin settust að í New York og eignuðust tvö börn.[2] Wiesel hóf störf sem kennari við Boston-háskóla árið 1976 og vann þar sem prófessor í bókmenntum.[3]
Wiesel hlaut á ferli sínum fjölmörg verðlaun fyrir störf sín í þágu gyðinga og ýmissa mannréttindahópa. Hann hlaut frönsku bókmenntaverðlaunin Prix Livre-Inter, Gullorðu bandaríska þingsins fyrir unnin afrek og loks friðarverðlaun Nóbels árið 1986. Þrátt fyrir að njóta mikillar virðingar fyrir störf sín í mannréttindamálum var Wiesel þó einnig gagnrýndur fyrir meint tómlæti sitt gagnvart glæpum Ísraelsstjórnar í garð Palestínumanna.[4][5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 1,5 „Vitnisburður fyrir heiminn“. Dagblaðið Vísir. 18. október 1987. Sótt 3. mars 2020.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 2,3 „Merkisberi friðar og frelsis“. Morgunblaðið. 26. október 1986. Sótt 4. mars 2020.
- ↑ "Fond memories of Elie Wiesel in Boston", Boston Globe, 2. júlí 2016
- ↑ „Bandarískur gyðingur“. Alþýðublaðið. 25. október 1986. Sótt 4. mars 2020.
- ↑ Uri Avnery (14. október 1986). „Kæri Elie Wiesel“. Þjóðviljinn. Sótt 4. mars 2020.