Hage Geingob
Hage Geingob | |
---|---|
Forseti Namibíu | |
Í embætti 21. mars 2015 – 4. febrúar 2024 | |
Forsætisráðherra | Saara Kuugongelwa |
Varaforseti | Nickey Iyambo (2015–2018) Nangolo Mbumba (2018–2024) |
Forveri | Hifikepunye Pohamba |
Eftirmaður | Nangolo Mbumba |
Forsætisráðherra Namibíu | |
Í embætti 21. mars 1990 – 28. ágúst 2002 | |
Forseti | Sam Nujoma |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Theo-Ben Gurirab |
Í embætti 4. desember 2012 – 20. mars 2015 | |
Forseti | Hifikepunye Pohamba |
Forveri | Nahas Angula |
Eftirmaður | Saara Kuugongelwa-Amadhila |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. ágúst 1941 Otjiwarongo, Namibíu |
Látinn | 4. febrúar 2024 (82 ára) Windhoek, Namibíu |
Þjóðerni | Namibískur |
Stjórnmálaflokkur | SWAPO |
Maki | Priscilla „Patty“ Geingos (g. 1967; skilin 1992) Loini Kandume (g. 1992; skilin 2008) Monica Kalondo (g. 2015) |
Börn | 3 |
Háskóli | Temple University Fordham University (BA) The New School (MA) University of Leeds (PhD) |
Hage Gottfried Geingob[1] (3. ágúst 1941[2] – 4. febrúar 2024) var þriðji forseti Namibíu. Hann gegndi embættinu frá því mars 2015 til dauðadags í febrúar 2024. Geingob var jafnframt fyrsti forsætisráðherra Namibíu frá sjálfstæði landsins árið 1990 til ársins 2002 og aftur frá 2012 til 2015. Frá 2008 til 2012 var Geingob verslunar- og iðnaðarráðherra landsins. Geingob var forseti stjórnarflokksins SWAPO frá því í nóvember 2017, en flokkurinn hefur setið í ríkisstjórn Namibíu frá sjálfstæði landsins.
Geingob var kjörinn forseti Namibíu í nóvember árið 2014 með afgerandi forskoti á aðra frambjóðendur. Hann var kjörinn forseti SWAPO þremur árum síðar á 6. flokksþingi flokksins. Í ágúst 2018 hóf Geingob eins árs kjörtímabil sem formaður Suður-afríska þróunarbandalagsins (SADC).[3]
Geingob lést úr krabbameini á sjúkrahúsi í Windhoek þann 4. febrúar árið 2024.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Geingob is a champion of the poor“. New Era Newspaper Namibia. 31. október 2014. Afrit af upprunalegu geymt þann desember 1, 2017. Sótt 1. nóvember 2019.
- ↑ Síða um Geingobá heimasíðu namibíska þingsins. Geymt 2 maí 2020 í Wayback Machine
- ↑ https://www.iol.co.za/news/africa/ramaphosa-hands-over-sadc-chairmanship-to-namibias-geingob-16618503
- ↑ Rafn Ágúst Ragnarsson (4. febrúar 2024). „Forseti bendlaður við Samherjamálið látinn“. Vísir. Sótt 4. febrúar 2024.
Fyrirrennari: Fyrstur í embætti |
|
Eftirmaður: Theo-Ben Gurirab | |||
Fyrirrennari: Nahas Angula |
|
Eftirmaður: Saara Kuugongelwa | |||
Fyrirrennari: Hifikepunye Pohamba |
|
Eftirmaður: Nangolo Mbumba |