Kornsá
Útlit
Kornsá er bær vestanmegin í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Bærinn var reistur árið 1879 af Lárusi Blöndal sýslumanni og var forsmiður bæjarins Björn Jóhannesson.[1] Innan lands bæjarins er tjörnin Kattarauga sem var friðlýst 1975.[2]
Þórdís Ingimundardóttir, dóttir Ingimundar gamla og fyrsti innfæddi Vatnsdælingurinn og Hallormur bjuggu að Kornsá, þeirra sonur var Þorgrímur er síðar varð Kornsárgoði, frillusonur hans var Þorkell krafla, sá er Þórir hafursþjó fóstraði.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ http://internet.is/sgt/ Geymt 16 mars 2015 í Wayback Machine Sýslumannshúsið að Kornsá
- ↑ Kattarauga Umhverfistofnun