Absalon erkibiskup
Útlit
Absalon (1128 – 21. mars 1201) var danskur biskup og erkibiskup. Hann var vinur og fóstbróðir Valdimars Knútssonar. Absalon varð biskup í Hróarskeldu árið 1158. Um 1160 fékk hann þorpið Höfn og nærliggjandi bæi sem lén frá konungi en það svæði varð seinna Kaupmannahöfn. Árið 1167 byggði hann borg á hólmi þar og liggja rústir af Absolons Borg undir Kristjánsborgarhöll. Árið 1178 varð hann erkibiskup í Lundi. Þegar Knútur 6. varð konungur árið 1182 var það í raun Absalon sem stjórnaði Danmörku.
Fyrirrennari: Áskell |
|
Eftirmaður: Sunesen |