317
Útlit
Árþúsund: | 1. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
317 (CCCXVII í rómverskum tölum) var 17. ár 4. aldar sem hófst á þriðjudegi samkvæmt júlíanska tímatalinu. Innan Rómaveldis var það þekkt sem ræðismannsár Gallicanusar og Bassusar eða sem árið 1070 ab urbe condita. Það hefur verið þekkt sem árið 317 frá því snemma á miðöldum þegar Anno Domini-tímatalið, hið Kristna tímatal, var tekið upp.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 1. mars - Konstantínus mikli og meðkeisari hans Licinus gerðu syni sína, Crispus, Konstantínus 2. og Licinus 2., að keisurum. Eftir það flutti Konstantínus til Sirmium í Pannóníu þar sem hann undirbjó herför gegn Gotum og Sarmötum.
- Licinus viðurkenndi Konstantínus sem yfirkeisara og lét taka Valerius Valens af lífi.
- Sextán konungsríki: Jin Yuandi flúði með hirðina í suður. Hann tók við sem konungur Jin-veldisins og setti upp nýja höfuðborg í Jiankang (nú Nanjing).
- Elstu staðfestu ritheimildir um te eru frá þessu ári, þótt Kínverjar hefðu þegar drukkið það öldum saman.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 7. ágúst - Konstantíus 2. Rómarkeisari (d. 361).
- Fú Jiàn, konungur Fyrrum Qin (d. 355).
- Marteinn frá Tours, biskup og dýrlingur (d. 397).
- Þemistíos, grískur stjórnmálamaður (d. um 390).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Valerius Valens Rómarkeisari.