1519
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1519 (MDXIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Grímur Jónsson varð lögmaður norðan og vestan.
- Ögmundur Pálsson var kjörinn biskup í Skálholti.
- Týli Pétursson hirðstjóri og Ögmundur Pálsson biskupsefni deildu á Alþingi en Vigfús Erlendsson gekk á milli þegar Týi ætlaði að slá og stinga Ögmund.
- Arnfinnur Þorsteinsson varð hirðstjóri.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 4. mars - Hernán Cortés lenti við Veracruz á Júkatanskaga í Mexíkó.
- 28. júní - Karl 1. Spánarkonungur varð keisari hins Heilaga rómverska ríkis sem Karl 5.
- 10. ágúst - Ferdinand Magellan lagði af stað frá Sevilla með þrjú skip í hnattsiglingu sína. Eftir fimm vikna bið í Sanlúcar de Barrameda hélt leiðangurinn loks af stað frá Spánarströndum 20. september.
- 8. nóvember - Montesúma 2. bauð Hernán Cortés velkominn inn í borg Asteka, Tenochtitlán.
- Spánverjar uppgötvuðu Barbados í Vestur-Indíum.
- Kakó barst fyrst til Evrópu frá Nýja heiminum.
Fædd
- 13. apríl - Katrín af Medici, drottning Hinriks 2. Frakkakonungs (f. 1589).
- 31. mars - Hinrik 2. Frakkakonungur (d. 1559).
- 6. júní - Andrea Cesalpino, ítalskur læknir, heimspekingur og grasafræðingur (d. 1603).
- 22. júlí - Innósentíus IX páfi (d. 1591).
Dáin
- 12. janúar - Maxímilían 1. keisari hins Heilaga rómverska ríkis (f. 1459).
- 2. maí - Leonardo da Vinci, ítalskur listamaður og uppfinningamaður (f. 1452).
- 24. júní - Lucrezia Borgia, ítölsk hertogaynja (f. 1480).