Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir (fædd 12. maí 1974) er íslensk stjórnmálakona. Hún var oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í borgarstjórn Reykjavíkur 2009-2016 og forseti borgarstjórnar 2014-2016.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Sóley ólst upp að mestu leyti í Kópavogi en fluttist til Reykjavíkur á unglingsárum. Hún er stúdent frá MH og er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum. Sóley hefur unnið hjá Félagsvísindastofnun HÍ, á auglýsingastofunni Hvíta húsinu, Auglýsingastofu skaparans og hjá íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar.
Sóley er gift Aart Schalk og á tvö börn.
Stjórnmálaþátttaka
[breyta | breyta frumkóða]Sóley var varaborgarfulltrúi frá kosningum vorið 2006 en tók sæti borgarfulltrúa þegar Svandís Svavarsdóttir var kjörin á þing vorið 2009. Sóley var kjörin aftur í borgarstjórn 2010 og 2014, í bæði skiptin sem eini fulltrúi Vinstri grænna. Sóley hefur lengi verið virk í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og var ritari flokksins árin 2007-2015.[1][2]
Sóley hefur setið í flestum fagráðum borgarinnar en varð forseti borgarstjórnar þegar fjögurra flokka meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata tók við völdum 16. júní 2014.[3]
Sóley tilkynnti í maí 2016 að hún hygðist hætta í borgarstjórn, þar sem hún væri að flytja til Hollands ásamt eiginmanni sínum og fjölskyldu. Sóley hugðist hefja meistaranám í uppeldisfræði í Hollandi. Sóley baðst lausnar á fundi borgarstjórnar 20. september 2016 og tók Líf Magneudóttir þá við sæti Sóleyjar og var kjörin forseti borgarstjórnar.[4]
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]Sóley var skipuð beikonsendiherra á vegum Íslenska beikonbræðralagsins í aðdraganda beikondagsins sem haldinn var 16. ágúst 2014.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Tveir kostir í boði við stjórnarmyndun, Vísir, 25. febrúar 2007.
- ↑ Ný stjórn Vinstri grænna Geymt 6 október 2017 í Wayback Machine, vg.is, 24. október 2015.
- ↑ Sóley verður forseti borgarstjórnar, mbl.is, 11. júní 2014
- ↑ "Sóley hættir í borgarstjórn og Líf tekur við", Reykjavíkurborg, 21. september 2016 Sótt 4. apríl 2017.
- ↑ Sóley verður beikonsendiherra, ruv.is, 9. ágúst 2014
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip á vef Reykjavíkurborgar Geymt 14 apríl 2013 í Wayback Machine
- Heimasíða Sóleyjar Geymt 18 júní 2018 í Wayback Machine