1788
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1788 (MDCCLXXXVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- 1. janúar - Við afnám einokunarverslunar um áramót varð verslun á Íslandi frjáls öllum þegnum Danakonungs.
- Séra Jón Steingrímsson samdi yfirlitsritið Fullkomið skrif um Síðueld, sem yfirleitt er kallað Eldritið.
- Páll Hjálmarsson varð síðasti skólameistari Hólaskóla.
- Faktorshúsið í Hæstakaupstað, Ísafirði, var byggt af norskum kaupmönnum.
Fædd
- Björn Gunnlaugsson, landmælingamaður og höfundur stjörnufræðirita (d. 1876).
Dáin
Erlendis
breyta- 2. janúar og 9. janúar - Georgía varð 4. fylki Bandaríkjanna og Connecticut það 5.
- 26. janúar: Fyrsta nýlenda Evrópumanna í Ástralíu stofnuð, fanganýlendan sem síðar hlaut nafnið Sydney. Í dag er haldið upp á þjóðhátíðardag Ástralíu á þessum degi.
- 6. febrúar - Massachusetts varð 6. fylki Bandaríkjanna.
- 21. mars - Bruninn mikli í New Orleans: 856 hús brann til grunna og 25% íbúa létust.
- 28. apríl - Maryland varð 7. fylki Bandaríkjanna.
- 23. maí - Suður-Karólína varð 8. fylki Bandaríkjanna.
- 21. júní - New Hampshire varð 9. fylki Bandaríkjanna.
- 25. júní - Virginía varð 10. fylki Bandaríkjanna.
- 27. júní - Sænsk-rússneska stríðið (1788-1790) hófst.
- 26. júlí - New York-fylki varð 11. fylki Bandaríkjanna.
- 10. ágúst - Wolfgang Amadeus Mozart lauk sinni síðustu sinfóníu.
- Október - Georg 3. Bretakonungur varð geðveikur og gat ekki sinnt starfi sínu.
- Desember - Robert Burns samdi lagið Auld Lang Syne.
- Breska dagblaðið The Times kom fyrst út.
- Bærinn Ullapool var stofnaður í Skotlandi.
Fædd
- 22. janúar - Byron lávarður, enskt skáld (d. 1824).
- 22. febrúar - Arthur Schopenhauer, þýskur heimspekingur (d. 1860).
- 9. október - József Kossics, slóvensku rithöfundur, kaþólsku prestur (d. 26. desember, 1867).
Dáin
- 2. ágúst - Thomas Gainsborough, enskur listmálari (f. 1727).
- 13. ágúst - Bolle Willum Luxdorph, danskur sagnfræðingur, skáld og embættismaður (f. 1716).
- 14. desember - Carl Philipp Emanuel Bach, þýskt tónskáld (fæddur 8. mars, 1714).